Núðlur með léttsteiktu grænmeti og kjöti

Grænmetisréttir

Tekið til í ísskápnum (fyrir 2)

Efni:
1 pakki kjúklinganúðlur með chillipiparbitum
1 lítill spergilkálshaus (brokkolí)
1 stór gulrót
1/2 laukur
1/3 græn paprika
1/3 rauð paprika
1 sneið steikt svínakjöt (nota má aðra kjötafganga)
salt og pipar (eftir smekk)

Meðhöndlun
Sjóðið núðlurnar eftir fyrirmælum á pakkningum. Saxið grænmeti og kjöt, og léttsteikið í olíu á pönnu í nokkrar mínútur (hafið lokið yfir). Bætið soðinu af núðlunum út á pönnuna og sjóðið grænmetið í því í nokkrar mínútur enn, eða þar til það er orðið meyrt. Kryddið með salti og pipar eftir smekk (chillisoðið gæti nægt sem krydd).

Þessi uppskrift er varla uppskrift, heldur frekar hugmynd um hvernig nýta má ýmsa grænmetis- og kjötafganga, í stað þess að henda þeim.

Sendandi: Heiða María Sigurðardóttir <heidasi@hi.is> (31/08/2004)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi