Frábær og fitandi.

Fiskréttir

Frábær og fitandi

Efni:
2 ýsuflök
paprika
ananas(litil dós)kurl
rjómi
hveiti
salt
karrý

Meðhöndlun
hreinsa fiskinn
blanda saman hveiti karrý og salt
velta fiskinum upp úr hveiti blöndunni
steikja fiskinn og setja í eldfast mót
brytja paprikuna og mýkja í afgangs feitinni
bæta ananas kurli á pönnuna
hræra restinni af karrý hveitinu út á pönnuna
hella ananas safanum útí
hella rjóma útá og láta krauma smá stund
hella sósunni yfir fiskinn í mótinu
strá osti yfir
setja í heitan ofn þar til osturinn er gullinn
bera fram með hrísgrjónum og fersku salati.

Sendandi: Kristín Steingrímsdóttir <karenros@eyjar.is> (25/02/1997)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi