Guðdómleg súkkulaði kaka

Brauð og kökur

Þessi klikkar ekki

Efni:
2 dl sykur
4 egg
200 gr súkkulaði
200 gr smjör
1 dl hveiti

Krem
200 gr súkkulaði
70 gr smjör
2 msk síróp

Meðhöndlun
Sykur og egg eru þeytt saman og súkkulaði og smjör brætt saman í potti eða í skál í örbylgjuofni.
Súkkulaðiblöndunni bætt úti eggjablönduna og síðan hveitinu bætt í.Sett í smurt mót og bakað í 30-45 mín við 180-200 C.
Kremið er einfaldlega brætt og smurt yfir kökuna kalda eða volga. Borðað kalt eða volt með rjóma eða Ís .




Sendandi: Ólöf Brynja Jónsdóttir (25/10/2004)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi