Bakaðar perur með súkkulaði
Ábætisréttir
Perur bakaðar í ofni með bræddu After Eight súkkulaði
Efni:
1 dós niðursoðnar perur
6-7 stk. After Eight plötur
Vanilluís
Meðhöndlun
Safanum er hellt af perunum og þeim raðað í eldfast mót, kúftar upp.
After Eight plötum er raðað yfir perurnar, ein plata á hverja peru.
Bakað við 180°C þangað til að súkkulaðið er bráðnað yfir perurnar (ca. 5-10 mín)
Borið fram á diskum með vanilluís.
Sendandi: Arnar Ólafsson <pollur@simnet.is> (10/11/2004)