Einn besti pastaréttur sem ég hef smakkað :o)

Pizzur og pasta

Mjög auðveldur, þið verðið að prófa þennan.. :o)

Efni:
Pasta slaufur
Beikonsmurostur
Rjómi
Rauð Paprika
pylsur
pepperoni
skinka
(ostur)

Meðhöndlun
Sjóða pastað

Paprikan, pylsurnar, pepperoníið og skinkan eru skorin í bita.

Pylsurnar steiktar á pönnu í smá stund einar, skinkunni og pepperoníiunu er bætt útí, steikt í smá stund síðan er beikonostinum bætt út í, látinn bráðna og svo rjómanum (bara eftir smekk) Og loks er paprikan sett útí :) Þessu er svo blandað saman við pastað.

Ef fólk vill ost með þá er líka gott að setja allt þetta í eldfastmót og inní ofn þangað til osturinn er bráðnaður.. en bara smekksatriði.

Rosa gott með hvítlauksbrauði
Verði ykkur að góðu..

Sendandi: Frá mér til ykkar ;o) (25/02/2005)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi