gæsabringur að hætti villimanna

Kjötréttir

gæsabringur í aðalbláberjasósu

Efni:
1/2 l vatn til að setja yfir fjallagrösin

100 gr smjör
2 gæsabringur
100 gr íslenskir villisveppir
1/2 l rjómi
1-2 tsk. rifsberjasulta
handfylli fjallagrös
handfylli aðalbláber
salt
pipar
(villibráðakraftur)

Meðhöndlun
Sjóða vatn og hella því yfir fjallagrösin.
Steikja gæsabringurnar vel upp úr ekta smjöri/ má skera þær til helminga.
Krydda með salt og pipar. Taka þær af pönnunni og steikja sveppina. Mjög gott að nota nýtínda íslenska villisveppi. Setja bringurnar aftur á pönnuna með sveppunum og hella rjómanum yfir allt og láta krauma í nokkrar mín. Fjallagrösin þerruð og sett útí. Bragðið til með salti, pipar og smá heimagerðri rifsberjasultu. Að lokum er pannan tekin af og nýtínd aðalbláber sett útí

Sendandi: Álfheiður Einarsdóttir <alfheidure@husaskoli.is> (03/10/2005)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi