Skúffukaka Jónínu

Brauð og kökur

Svakalega auðveld kaka og rosa góð

Efni:
190 gr brætt smjörlíki
5 msk kakó
375 gr hveiti
410 gr sykur
1,5 tsk lyftiduft
3/4 tsk matarsódi
1 tsk salt
3 dl mjólk
3 egg

Smjörkrem
100gr herbergisheitt smjörlíki
1 egg
flórsykur eftir þörfum
1 tsk vanilludropar
1 msk kaffi (má sleppa)
3 msk kakó

Meðhöndlun
Kaka:
Allt sett í skál og hrært saman í 5 mín. Sett í létt smurða ofnskúffu og bakað í ca 40 mín í 173°C

Krem:
Allt sett í skál nema flórsykurinn og hrært saman svo smátt og smátt bætt út í flórsykur þar til kremið er orðið ljós brúnt á litinn.

Sendandi: Hafdís <hafos@hotmail.com> (17/05/2006)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi