Þóraterta

Brauð og kökur

Marensterta með rjóma, súkkulaðikremi og berjum

Efni:
Botn:
4 eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl púðursykur
2 bollar Kellogg's Rice Krispies

Krem:
80 g smjör
60 g flórsykur
4 eggjarauður
100 g Síríus rjómasúkkulaði
2 1/2 dl rjóma

Meðhöndlun
Botn:
Stífþeytið eggjahvítur, sykur og púðursykur saman. Myljið Rice Krispies og setjið varleg
a út í. Bakið við 150°C í 60 mín.

Krem:
Bræðið súkkulaði í vatnsbaði, hrærið saman smjör, flórsykur og eggjarauður og bætið síða
n súkkulaðinu saman við. Þeytið rjómann, smyrjið neðri botninn með hluta af kreminu setj
ið rjómann á milli og afganginn af kreminu ofan á.

Skreytt með allskonar berjum

Sendandi: Guðrún Björk Einarsdóttir <gbe@heima.is> (23/06/2006)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi