| UPPSKRIFT FYRIR 4 til 6 2 pl.  Kaffirjómi
 1 stk. Rjómaostur (með einhverri kryddblöndu. Notið hugmyndaflugið!)
 1 stk. Piparostur (þessi litli steypti)
 1-2    teningar af kjötkrafti (tegund fer eftir kjötinu sem eldað er)
 krydd eftir smekk (t.d. piparblanda og örlítið aromat)
 sósulitur (notist í samræmi við smekk hvers og eins)
 
 | Kaffirjóminn er hitaður í potti, ekki láta sjóða. Kjötkraftinum blandað saman við, (eins má nota kraft af kjötinu sem
 er verið að steikja en í guðana bænum fleytið feitinni ofanaf)!
 Ostarnir bræddir samanvið (gott er að saxa piparostinn niður fyrst).
 Kryddinu bætt við (ekki krydda mikið). Ef ykkur finnst sósan of ljós
 þá er það gamli góði sósuliturinn sem bjargar því (t.d. í samræmi við
 kjötið, t.d. ljósari með svíni og s.frv.)
 Núna er óhætt að láta suðuna koma upp smástund og er þá þessi gæða
 sósa tilbúin.  Nammi namm.
 Það er upplagt að nota sveppi í þessa sósu og eru þeir bestir nýjir,
 niðursneiddir og léttbrúnaðir á pönnu.  Gott er að krydda þá létt með
 eftirlætis kryddinu sínu og ekki spillir að hella yfir þá örlitlu
 rauðvíni.  Sveppirnir eru svo settir út í sósuna áður en suðan er
 er látin koma upp.
 
 |