| BOTNAR: (1 BOLLI=4 DL) 3 bollar hveiti
 3 bollar sykur
 1 bolli kakó
 1/2 bolli brætt smjör
 3 tsk matarsódi
 2 bollar mjólk
 2 egg
 
 KREM (1 BOLLI=10 DL=) (UPPSKRIFTIN ER EINGÖNGU TIL VIÐMIÐUNAR)
 300 gr smjör
 4 bollar flórsykur
 1/2 bolli kakó
 1 egg
 vanilludropar
 heitt kaffi
 
 | BOTNARNIR: Allt hrært saman í tvær mínútur nema eggjum, síðan egg með í tvær mínútur. Sett í eldföst form og bakað við 210°C. Ef að deigið kemst fyrir í tvö form er það bakað í 40-60 mínútur.
 KREMIÐ:
 Uppskriftin af því er eingöngu til viðmiðunar. Magninu verður að breyta að vild, en þó er aðaluppistaðan lint smjörlíki og flórsykur. Botnarnir eru síðan settir ofan á hvern annan og kremið á milli og utan á þá. Oft er ágætt að nota kremið til að fylla upp í lægðir sem kunna að myndast þegar botnarnir eru komnir saman.
 
 Hrærivélaskálin þarf að vera í stærra lagi
 Gætið þess að skera aðeins örþunna sneið handa hverjum og einum, vegna þess að oft verða menn pakksaddir af einni sneið.
 Verði ykkur að góðu.
 
 
  
 
 |