700g kartöflur
700g sætar kartöflur
2 laukar, þunnt sneiddir
1 poki rifinn mozzarella m/ kryddi
1 lítill gráðostur, gróft rifinn
2 1/2dl rjómi
salt & pipar
|
Afhýðið kartöflurnar og sneiðið frekar þunnt. Raðið fyrst einu lagi af venjul. kart. í eldfast mót og saltið og piprið og svo 1/2 af ostinum. Raðið þá einu lagi af sætum kart. og stráið 1/2 af gráðostinum þar yfir. Raðið þá næst einu lagi af lauk á gráðostinn og að lokum er blöndu af sætum kart., lauk og kart. dreift yfir. Hellið þá rjómanum yfir, kryddið og bakið í 25 mín. v/ 180°c. Takið úr ofninum og stráið afgangnum af mozzarella og gráðostinum yfir og bakið áfram í 20 mín. eða þar til kart. eru orðnar mjúkar.
|