| Brauð: 200 ml mjólk
 2 msk sykur
 1 poki þurrger eða 5 tsk
 600 gr hveiti
 1 tsk salt
 2 tsk lyftiduft
 4 msk olía
 1 dós hreint jógúrt
 Krydd:
 1 msk Maldonsalt
 1 msk indverk kryddblanda (t.d. garam masala eða eitthvert gott krydd sem ykkur dettur í hug)
 25 gr smjör
 1-2 hvítlauksrif,
 smátt söxuð
 
 
 | Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 15 mínútur. Blandið síðan hveiti, salt, lyftidufti, olíu og jógúrt saman við germjólkina. Látið deigið hefast í skál í 1 klst. við stofuhita. Hitið ofninn í 275°C eða 210-220 blátur. Skiptið deiginu í 10-12 hluta og hnoðið kúlur úr þeim. Fletjið síðan kúlurnar út nokkuð þunnt. Raðið brauðunum á plötu sem er klædd bökunarpappír og bakið þau í 5-7 mín. Þið getið líka bakað þau á efri grind á gasgrilli. Bæðið svo smjörið og látið kryddið og hvítlaukinn úti. Þegar brauð er komið úr ofninum þá setja smjörblönduna ofan á heit brauðið.
 Brauðin eru best heit. Fínt er að frysta þau og hita þau svo rétt fyrir matinn.
 
 |