| 2 Sveppir 2 skinkusneiðar
 4 pepperonisneiðar
 1/3 laukur
 rauð paprika eftir smekk
 1/2 dl rjómi
 1/4 dl pizzasósa eða bara smá sletta
 2 ristaðar brauðsneiðar
 salt og pipar
 pítusósa
 ostur
 
 | þið takið sveppi, lauk, pariku, skinku og pepperoni og skerið það í bita og skellið á pönnuna og steikið í 3 min upp úr smjöri eða þangað til að þetta sé farið að brúnast. Hellið því næst pizzasósuni útá og hrærið.
 bætið rjómanum út í og kryddið með salti og pipar látið krauma vel í þessu 3-5 mín og hræra vel.
 takiði ristaða brauðið og og setjiði pítusósu á það og helliði gumsinu yfir.
 gott er að setja ost ofaná verðið ykkur að góðu
 p.s mjólk er góð !!!
 
 |