230 g   smjör 
2 dl      sykur  
4 1/2  dl   hveiti 
2         egg 
2 dl      púðursykur 
350g    súkkulaðidropar (eða brytjað suðusúkkulaði) 
1 tsk    hjartarsalt 
1 tsk    vanilludropar 
1/2 tsk    salt 
              
               
             | 
             
              
1. stilltu ofninn á 190°  
Hrærðu smjörinu (alls ekki bræða smjörið, betra að nota smjör en smjörlíki.), sykrinum & púðursykrinum saman, þangað til að þetta er orðið að einhverskonar mauki. 
 
2. Brjótið egg og bætir í hrærið deigið vel. Setjið svo Vanilludropana í. 
 
3. Setjið hveiti, salt & hjartarsalten lítið af hveiti í einu á meðan þú hrærir saman. 
 
4. Setjið súkkulaðidropana í deigið og hrærið. 
 
5.  Passaðu að gleyma engu !  Búið til litlar bollur og setjið á plötu,(gleymdu ekki bökunarpappírnum). Þú þarft ekki að búa til kúlulaga bollur, því þetta bráðnar og verður að þunnri köku eins og subway-kökurnar eru.  
 
6.  Setjið inn í ofn þangað til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar. Raðið svo á grind. 
              
               
             |