4 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 dl sykur
örlítið salt
1-2 tsk. engifer, malað (eftir smekk)
2 egg
3 msk. hrein jógúrt
1 dl olía, t.d. grænmetisolía, eða brætt smjör
1 ½ dl rabarbari, smátt skorinn
1 tsk. kanilduft
|
Blandið hveiti, lyftidufti, sykri, salti og engiferi saman. Hrærið vel saman í annarri skál eggjum, jógúrti og olíu. Blandið síðan saman við þurrefnin. Kanil er blandað saman við smátt saxaðan rabarabarann og ríflega helmingnum af honum er bætt út í deigið. Skiptið síðan deiginu í 12 múffuform og setjið afganginn af rabarbaranum ofan á. Bakið í 20 mínútur við 200 gráður. Látið múffurnar kólna áður en bornar fram.
|