| 300 gr tagliatelli 30 gr smjör eða smjörlíki
 200 gr beikonsneiðar, saxaðar smátt
 1 msk ólífuolía
 1-2 dl rjómi
 paprikukrydd á hnífsoddi
 60 gr rifinn parmesanostur
 4 egg
 salt og pipar
 
 | 1. Hitið olíuna á pönnu og steikið beikonbitana við meðalhita þar til þeir eru ljósbrúnir. 2. Bætið paprikunni í og látið krauma í 1 mínútu enn.
 3. Bætið rjómanum í og pískið saman.
 4. Setjið eggin og rifinn ostinn útí, pískið saman í smástund, eða þar til eggin eru orðin mátuleg.
 5. Sjóðið tagliatelli í léttsöltu vatni í 10 mín, eða þar til það er mátulega soðið. (Ágætt að byrja á því að sjóða pastað áður en maður gerir sósuna)
 6. Síið vatnið af pastanu og hellið því síðan í pottinn aftur, bætið smjöri, salti og pipar út í og blandið vel.
 7. Nú er sósunni hrært saman við pastað og bragðbætt með salti og parmesan. Borið fram strax.
 
 Verði ykkur að góðu!
 
 |