| 1 stór dós jarðarberjaskyr 1/2 dl sykur
 2 egg
 1 tsk vanilla
 5-6 matarlímsblöð
 1 peli þeyttur rjómi
 örlítil mjólk og vanilludropar
 
 Botninn:
 1 pakki Homeblest-kex
 2-3 msk brætt smjör
 
 | 1, Kexið er mulið og bræddu smjöri hrært saman við. 2.Mylsnunni er þrýst í botn á djúpu formi.
 
 3. Eggin þeytt og hrærð með sykrinum og sett í skál. Rjóminn þeyttur.
 4. Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn og látið linast. Síðar er vatnið kreist úr því og það brætt í vatnsbaði. Látið kólna smástund.
 5. Skyrið er hrært og eggjablöndunni blandað saman við.
 6. Örlítilli mjólk og vanilludropum hrært út í matarlímið svo hitastig þess verði fingurvolgt. Þá er því hrært varlega út í skyrblönduna. Síðan er rjóminn hrærður saman við og blöndunni hellt yfir kexmylsnuna í forminu og látið stífna í ísskáp í nokkra klukkutíma.
 7. Skreytt með jarðarberjum og/eða öðrum berjum
 
 |