| 1,2 lítrar vatn og kjötkraftur 400 gr lambakjöt
 1 tsk salt
 200 gr gulrætur
 200 gr gulrófur
 100 gr hvítkál
 7 msk súpujurtir
 1 laukur
 1 dl kalt vatn
 3 msk súpuduft (blómkáls- eða blaðlaukssúpuduft)
 
 | 1. Hreinsið og skerið kjötið í fremur litla bita og látið út í sjóðandi vatn ásamt kjötkrafti. Lækkið hitann í minnsta straum en passið að suðan detti ekki niður. 2. Veiðið froðuna af þegar suðan er komin upp og sjóðið í 30 mínútur.
 3. Flysjið rófur og gulrætur og skerið smátt helminginn af þeim og setjið út í kjötpottinn þegar kjötið hefur soðið í hálftíma og sjóðið með kjötinu síðasta korterið af suðutímanum. Skerið hinn helminginn í stærri bita og sjóðið sér og berið fram með kjötinu.
 4. Skerið hvítkálið fremur smátt og sjóðið það í súpunni síðasta korterið ásamt hinu grænmetinu.
 5. Hristið saman í hristiglasi súpuduftið og 1 dl af vatni og hrærið út í súpuna og látið sjóða með síðustu 10 mínúturnar.
 
 Borið fram með kartöflum.
 
 |