|
|
|
|
Pylsur, pasta, beikon, sveppir í ostasósu
|
Óskilgreindar uppskriftir
|
Hrikalega óhollt en gott
|
|
1 einfaldur pylsupakki
1 bréf beikon
Pasta eins og vill
Sveppir eins og vill
1/2 hvítlauksostur
1/2 camenbert
1 piparostur
1 peli matreiðslurjómi
|
Byrja á því að sjóða pastað þar til það er tilbúið. Steikir pylsurnar á pönnu í smá stund einar, bætið sveppunum og pastanu útí. Steikið beikonið í örbylgjunni í 8 mín á fullum krafti (setur eldhúsrúllubréf bæði undir og yfir) Þegar það er tilbúið er beikonið brytjað niður og sett á pönnuna. Meðan þetta mallar saman er gott að setja matreiðslurómann 1/2 í pott og láta ostinn útí og hann látinn bráðna, meiri rjóma er síðan bætt í eftir því hversu mikla þykkt á sósunni hver vill.
Þegar sósan er tilbúin þá gott að setja allt jukkið út í hana.
Mæli með því að sjóða kartöflur og jafnvel skera þær í tvennt og setja útí.
Gott með hvítlauksbrauði
|
|
Sendandi: Guðrún
|
23/04/2005
|
Prenta út
|
|
|